Fjallið Þorbjörn í Grindavík. Ljósm. björgunarsveitin Þorbjörn

Óvissustigi lýst yfir á Reykjanesi

Í nótt hófst jarðskjálftahrina norðan við Grindavík og hafa yfir þúsund jarðskjálftar mælst það sem af er degi. Stærsti skjálftinn mældist kl. 8:18 í morgun og var 4,5 að stærð og sá næststærsti varð kl. 5:35 og mældist 3,9. Veðurstofunni hafa borist tilkynningar um að þessir skjálftar hafa fundist víða á Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu, en auk þess má nefna að sá stærsti fannst einnig á Akranesi samkvæmt upplýsingum Skessuhorns. Áfram er talsverð smáskjálftavirkni á svæðinu og ekki er útilokað að skjálftar af svipaðri stærð og í morgun eigi sér stað aftur, segir í hugleiðingum skjálftafræðinga á Veðurstofunni. Síðast mældust skjálftar af svipaðri stærðargráðu á Reykjanesskaga í júlí á þessu ári.

Óvissustigi lýst yfir á Reykjanesi - Skessuhorn