
Heima-Skaga hátíð með 23 tónleikum í ellefu heimahúsum og Bíó-balli
Tónlistarhátíðin Heima-Skagi verður haldin í þriðja sinn laugardaginn 28. október næstkomandi og er liður í menningarhátíðinni Vökudögum á Akranesi, sem verða settir i´dag og standa til 5. nóvember. Á Heima-Skaga koma fram ellefu listamenn og hljómsveitir sem spila tvisvar sinnum hver í jafn mörgum húsum. „Það stefnir í magnað kvöld, með 23 tónleikum í heima-húsum og annarskonar húsum og allt fyrir neðan Akratorg, í ellefu húsum í það heila,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson skipuleggjandi Heima-Skaga í samtali við Skessuhorn. Hann segir fyrirkomulag hátíðarinnar vera einstakt að því leyti að nándin við listafólkið er mjög mikil. „Það eru t.d. þrennir tónleikar í rakarastofu Hinriks þar sem nándin er mjög mikil, en svo er líka rokkað í Blikksmiðju Guðmundar, á Bárunni og Diddú og GDRN syngja í kirkjunni okkar fallegu. Martha og Björn opna heimili sitt á Vitateignum fyrir músík og gestum, Pálmi og Elfa á Grundartúninu og Angela og Benedikt á Háteig til dæmis.“