Fréttir

true

Skessuhorn með sjómanna,- útskriftar og kosningaþema

Blað Skessuhorns þessa vikuna er venju fremur efnismikið. Í 64 síðna blaði er meðal annars rætt við tíu sjómenn um líf þeirra og störf í tilefni þess að Sjómannadagurinn er næstkomandi sunnudag. Þá er í blaðinu sagt frá útskriftum í þremur framhaldsskólum í landshlutanum, auk fjölmargra frétta frá liðinni viku. Kosið verður til forseta næstkomandi…Lesa meira

true

Gríðarlega góð stemning í litahlaupinu – myndasyrpa

Í dag var skólahlaup Grunnskóla Grundarfjarðar haldið. Í fyrra var sú nýbreytni tekin upp að skólahlaupinu var breytt í litahlaup. Í ár var sama upp á teningnum og var óhætt að segja að þetta hafi tekist frábærlega. Leik- og söngkonan Viktoría Sigurðardóttir kom og stýrði upphitun fyrir krakkana og tók svo sjálf þátt í hlaupinu.…Lesa meira

true

Héldu aftur veislu sama dag og eldgos hófst

Það ætlar ekki að bregðast að þegar þessi vaski hópur á myndinni heldur veislu í heita pottinum á Jaðarsbökkum á Akranesi, þá hefst eldgos. Pottverjar hittast reglulega á þessum stað og einstaka sinnum gera menn sér dagamun. Að morgni 8. febrúar sl. hélt hópurinn þorrablót og varð vitni að því þegar jörðin á Reykjanesi opnaðist…Lesa meira

true

Eldgos hafið nærri þeim stað sem síðast gaus

Eldgosið hófst við Sýlingafell á Reykjanesi um klukkan 12:45 í dag. Það hófst af miklum krafti og með miklum hraða og er gossprungan þegar þetta er skrifað orðin yfir kílómetri að lengd og hraun spýtist 50 metra upp í loftið. Gossprungan er enn að lengjast en hún er nærri þeim stað sem síðast gaus. Í…Lesa meira

true

Kynna vinnslutillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið

Borgarbyggð er nú með í kynningarferli í skipulagsgátt vinnslutillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið í Borgarnesi. Sveitarstjórn samþykkti 8. maí síðastliðinn að auglýsa vinnslutillögu og er skipulagsáætlunin sýnileg í skipulagsgátt stjórnvalda frá 21. maí til og með 4. júní næstkomandi. Í deiliskipulagi eru þrjár lóðir; lóð íþróttahússins og sundlaugarinnar, lóð undir fyrirhugað fjölnota íþróttahús (hálfur…Lesa meira

true

Bláfánanum flaggað á Langasandi í morgun – Myndir

Í morgun var Bláfáninn dreginn að húni við Langasand á Akranesi, tólfta árið í röð. Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum. Meginmarkmið verkefnisins er að vernda lífríki haf- og strandsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er veittur þeim baðströndum…Lesa meira

true

Búast við eldgosi á hverri stundu

Áköf jarðskjálftavirkni stendur nú yfir á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesi. Samhliða því er aukin skjálftavirkni. Þá sýna gögn breytingar í borholuþrýstingi og aukna aflögun. Túlkun Veðurstofunnar er því sú að kvikuhlaup sé hafið og geti endað með eldgosi á næstu klukkutímunum.Lesa meira

true

Nýtt björgunarskip í smíðum fyrir Lífsbjörgu í Rifi

Síðastliðinn mánudag fóru þeir Viðar Páll Hafsteinsson frá björgunarsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ og Halldór Kristinsson, fyrir hönd Björgunarbátasjóðs Snæfellsness, í skipasmíðastöðina KewaTec í Kokkola í Finnlandi. Erindi þeirra var að skoða nýsmíðina á nýju björgunarskipi sem leysa mun Björgu af hólmi í Rifi. Núverandi Björg hefur reynst vel í gegnum árin enda hefur hún sinnt…Lesa meira

true

Kanna áhuga fyrir sérhæfðu svæðisleiðsögunámi á Snæfellsnesi

Snæfellsnes Adventure ehf. í Grundarfirði hefur undanfarið ár leitað leiða til að koma á svæðisleiðsögunámi fyrir Snæfellsnes. Að sögn Einars Sveins Ólafssonar hefur, eftir viðræður við forsvarsmenn Ferðamálaskóla Íslands (menntun.is), nú verið ákveðið að kanna áhuga einstaklinga fyrir náminu. „Náist viðunandi þátttaka færi kennslan fram á Snæfellsnesi og gerir hugmyndin einnig ráð fyrir að þátttekndum…Lesa meira