Skipið er nú í smíðum í Finnlandi. Ljósm. Lífsbjörg

Nýtt björgunarskip í smíðum fyrir Lífsbjörgu í Rifi

Síðastliðinn mánudag fóru þeir Viðar Páll Hafsteinsson frá björgunarsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ og Halldór Kristinsson, fyrir hönd Björgunarbátasjóðs Snæfellsness, í skipasmíðastöðina KewaTec í Kokkola í Finnlandi. Erindi þeirra var að skoða nýsmíðina á nýju björgunarskipi sem leysa mun Björgu af hólmi í Rifi. Núverandi Björg hefur reynst vel í gegnum árin enda hefur hún sinnt fjölda útkalla og þjónustuverkefna eins og fram hefur komið í fjölmörgum fréttum Skessuhorns á liðnum árum. Að sögn björgunarsveitarmanna mun með nýju björgunarskipi viðbragðstími styttast um helming, aðstaða verður mun betri um borð ásamt því að rekstrarkostnaður skipsins mun minnka. Nú er áætlað að skipið verði komið til landsins og afhent Lífsbjörgu fyrir lok þessa árs.

Nýtt björgunarskip í smíðum fyrir Lífsbjörgu í Rifi - Skessuhorn