Einar Sveinn Ólafsson hjá Snæfellsnes Adventure ehf. í Grundarfirði. Ljósm. Skessuhorn/gj

Kanna áhuga fyrir sérhæfðu svæðisleiðsögunámi á Snæfellsnesi

Snæfellsnes Adventure ehf. í Grundarfirði hefur undanfarið ár leitað leiða til að koma á svæðisleiðsögunámi fyrir Snæfellsnes. Að sögn Einars Sveins Ólafssonar hefur, eftir viðræður við forsvarsmenn Ferðamálaskóla Íslands (menntun.is), nú verið ákveðið að kanna áhuga einstaklinga fyrir náminu. „Náist viðunandi þátttaka færi kennslan fram á Snæfellsnesi og gerir hugmyndin einnig ráð fyrir að þátttekndum sem vilja verði einnig boðið upp á fjarnám,“ segir Einar Sveinn í samtali við Skessuhorn. Könnun verður að sögn Einars Sveins kynnt á Facebookhópum á Snæfellsnesi og verður öllum opin.

Kanna áhuga fyrir sérhæfðu svæðisleiðsögunámi á Snæfellsnesi - Skessuhorn