Fréttir

true

Harður árekstur tveggja bíla í Kolgrafafirði

Undir kvöld í gær varð harður tveggja bíla árekstur í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi og höfnuðu báðir bílar utan vegar. Tiltækt lið viðbragðsaðila var kallað á vettvang en m.a. þurfti að beita klippum slökkviliðs á annan bílinn til að ná ökumanni hans út. Viðkomandi var fluttur slasaður á Sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynningar. Uppfært kl 10:50:…Lesa meira

true

Hreinsuðu nánasta umhverfi skólans

Vikuna 13. – 17. maí síðastliðinn var hreinsivika í Grunnskólanum í Borgarnesi. Tiltektardagurinn ,,Tökum til hendinni“ er eitt af þeim verkefnum sem skólinn tekur sér fyrir hendur á vorin og felst í því að hreinsa nánasta umhverfi skólans. Svæðinu er þá skipt niður á milli bekkja og skipuleggja nemendur og kennarar hvernig þeir munu vinna…Lesa meira

true

Diskóeyjan sló í gegn og var tekin upp til sýningar

Sýningum á Diskóeyjunni í uppfærslu nemenda í Brekkubæjarskóla á Akranesi lauk um síðustu helgi. Alls voru sýndar ellefu sýningar, uppselt var á níu þeirra og nánast fullt á hinar tvær. Síðasta miðvikudag kom tökulið frá kvikmyndafyrirtækinu Glassriver sem framleiðir kvikmyndir og sjónvarpsefni og tók sýninguna upp. Fyrirtækið hefur meðal annars séð um upptökur á kvikmyndinni…Lesa meira

true

Kári með tap á móti Hvíta riddaranum

Kári og Hvíti riddarinn mættust í fjórðu umferð 3. deildar karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn í Akraneshöllinni. Upphaflega átti leikurinn að vera í Mosfellsbæ en vegna veðurs var skipt á heimaleikjum liðanna. Hvíti riddarinn náði forystu á 22. mínútu með marki frá Alexander Aroni Tómassyni og staðan 0-1 í hálfleik. Alexander Aron…Lesa meira

true

Fyrsti lax sumarsins kominn á land úr Skugga

Fyrsti lax sumarsins er kominn á land. Hann var veiddur í morgun í Skugga í Borgarfirði og veiðimaðurinn var Mikael Marinó Rivera, Reykvíkingur ársins í fyrra. Fiskurinn var 84 cm, nýgengin og falleg hrygna. Jón Þór Júlíusson segir að árin 2021 og 22 hafi fyrstu laxar sumarsins einmitt verið veiddir í Skugga. Vatnsbúskapur ánna er…Lesa meira

true

UMFG fór í keppnisferð í Neskaupstað

Það voru hressir krakkar sem lögðu land undir fót síðasta föstudag er þeir stigu upp í rútu snemma morguns. Þá var ferðinni heitið alla leið í Neskaupstað þar sem Íslandsmótið í blaki fór fram. Keppt var allan laugardaginn og fyrri hluta sunnudags. U12 og U14 lið í UMFG lentu bæði í öðru sæti og hlutu…Lesa meira

true

Rafmagnslaust um tíma á morgun

Rarik tilkynnti í morgun um að rafmagnslaust verður frá aðveitustöð á Vegamótum að Fíflholtum á Mýrum frá klukkan 11.00-17.00 á morgun, þriðjudaginn 28. maí. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar. Einnig verður rafmagnslaust á Melasveitarlínu frá aðveitustöðinni á Brennimel til og með Þjófaklettum, þriðjudaginn 28. maí, frá klukkan 17.00-20.00.Lesa meira

true

Knattspyrnufélagið Kjartan og Eiður Sigurðsson héldu upp á afmæli

Það var mikið líf í Borgarnesi á laugardaginn síðasta en nú er 30 ár liðin frá stofnun Knattspyrnufélagsins Kjartans. Félagið var stofnað af vinahópi, sem þá bjó í Kjartansgötu í Borgarnesi og æfði fótbolta á gamla Kjartansvelli. Á hápunkti félagsins spiluðu þeir leik á þá splunkunýjum Skallagrímsvelli í Borgarnesi, gegn Snæfelli frá Stykkishólmi. Gestum var…Lesa meira

true

Vafasamt víti réði úrslitum á Skaganum

ÍA og Víkingur Reykjavík áttust við í Bestu deild karla í knattspyrnu síðdegis á laugardaginn og var viðureignin á Elkem vellinum á Akranesi. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru alls ekki góðar, mikill vindur var og ekki hægt að bjóða upp á neinn samba fótbolta enda voru áhorfendur frekar fáir eða um 350. Fyrsta hálftímann gerðist lítið,…Lesa meira

true

Mælingar á sjávarbotni Grundarfjarðar

Nýlega fóru fram mælingar á dýpi og þykkt setlaga á sjávarbotni Grundarfjarðar. Mælingarnar og úrvinnsla úr þeim eru liður í undirbúningi vegna mögulegrar efnistöku af sjávarbotni, en Grundarfjarðarhöfn vinnur nú að nýrri umsókn um efnistökuleyfi vegna frekari landfyllinga og hafnarframkvæmda á komandi árum. Fram kemur á vef Grundarfjarðar að það var Köfunarþjónustan ehf. sem annaðist…Lesa meira