
Mikael Marinó Rivera í morgun með fyrsta lax sumarsins í Skugga í Borgarfirði.
Fyrsti lax sumarsins kominn á land úr Skugga
Fyrsti lax sumarsins er kominn á land. Hann var veiddur í morgun í Skugga í Borgarfirði og veiðimaðurinn var Mikael Marinó Rivera, Reykvíkingur ársins í fyrra. Fiskurinn var 84 cm, nýgengin og falleg hrygna. Jón Þór Júlíusson segir að árin 2021 og 22 hafi fyrstu laxar sumarsins einmitt verið veiddir í Skugga.