Mynd af sjávarbotni Grundarfjarðar. Ljósm. grundarfjordur.is

Mælingar á sjávarbotni Grundarfjarðar

Nýlega fóru fram mælingar á dýpi og þykkt setlaga á sjávarbotni Grundarfjarðar. Mælingarnar og úrvinnsla úr þeim eru liður í undirbúningi vegna mögulegrar efnistöku af sjávarbotni, en Grundarfjarðarhöfn vinnur nú að nýrri umsókn um efnistökuleyfi vegna frekari landfyllinga og hafnarframkvæmda á komandi árum.

Mælingar á sjávarbotni Grundarfjarðar - Skessuhorn