Fréttir

true

Hvassviðri og úrhelli í vikulokin

Djúp lægð gekk yfir Snæfellsnes á föstudag og laugardag með öflugum vindhviðum sem náðu yfir 35 metra samhliða mikilli úrkomu. Lítið var um óhapp vegna veðurs en hjólhýsi fauk þó á hliðina í Ólafsvík og í Rifi virkuðu ekki lensidælur í tveimur strandveiðibátum og einum í Ólafsvík, en ekki varð tjón svo vitað sé á…Lesa meira

true

Kellingar fjalla um upphaf skólahalds á Akranesi

Söguhópurinn Kellingar stefnir á að verða með viðburð á Sjómannadaginn, sunnudaginn 2. júní á Akranesi. Komið verður saman á Akratorgi kl. 13:30 og fjallar sögugangan um upphaf skólahalds á Akranesi. „Gangan hefst á Akratorgi og síðan verður gengið um miðbæinn. Allir eru velkomnir. Það liggur mikil vinna að baki göngunnar og væntum við að fá…Lesa meira

true

Útskrift frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Síðastliðinn föstudag voru 27 nemendur útskrifaðir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Tíu nemendur luku námi á félags- og hugvísindabraut, tveir luku námi á náttúru- og raunvísindabraut, tveir af nýsköpunar- og frumkvöðlabraut, átta luku námi á opinni braut, þrír á starfsbraut og tveir nemendur luku viðbótarnámi til stúdentsprófs. Með þessum hópi hefur skólinn nú útskrifað 597…Lesa meira

true

„Við Snæfellingar áttum að spila með í kvótakerfinu en ekki hlusta á Vestfirðinga“

Viðtal úr safni Skessuhorns frá árinu 2017 við Ólaf Rögnvaldsson „Aðkoma fjölskyldunnar að þessu fyrirtæki nær lengra aftur en aldur minn segir til um,“ segir Ólafur Rögnvaldsson framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands þegar rætt er við hann um fyrirtækið sem nú má segja að sé dæmigert fjölskyldufyrirtæki. „Þannig var að pabbi, Rögnvaldur Ólafsson, var fæddur á Brimilsvöllum…Lesa meira

true

Stór hópur útskrifaður úr Fjölbrautaskóla Vesturlands

Í gær voru 78 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, af níu mismunandi námsbrautum. 15 ljúka burtfararprófi úr rafvirkjun og einn bæði burtfararprófi í rafvirkjun og viðbótarnámi til stúdentsprófs. Einn lauk burtfararprófi í vélvirkjun og einn útskrifast úr meistaraskólanum. Þrír ljúka burtfararprófi af sjúkraliðabraut. 29 luku stúdentsprófi af opinni stúdentsbraut, tveir af félagsfræðabraut og…Lesa meira

true

Brautskráning frá Menntaskóla Borgarfjarðar

Í gær voru 34 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Kolbrún Líf Lárudóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Kolbrún hvatti samnemendur sína til að fagna deginum og sagði meðal annars: „Þessi þrjú ár sem að ég hef verið í MB hafa verið krefjandi, fjölbreytt, skemmtileg en fyrst og fremst stútfull af æðislegum minningum…Lesa meira

true

Hvassviðri á Snæfellsnesi fram undir kvöld

Í dag verður suðaustan 15-23 m/s á Snæfellsnesi og snarpar hviður. Breiðafjörður er nú eina spásvæði landsins þar sem gul viðvörun er í gildi, en henni lýkur klukkan 17 í dag. „Varasamt ferðaveður fyrir öktæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið,“ segir Veðurstofufólk.Lesa meira

true

Sissi lætur gamlan draum rætast

Viðtal úr safni Skessuhorns frá árinu 2008 Í Borgarnesi var nýlega tekið í notkun eitt fullkomnasta upptökuver landsins og hefur það fengið nafnið Gott hljóð. Þótt ekki sé það stórt í fermetrum talið, er allur tæknibúnaður og aðstaða með besta móti. Það er Sigurþór Kristjánsson, tónlistarmaður, “tæknigúrú” og starfsmaður í félagsmiðstöðinni Óðali til margra ára…Lesa meira

true

Framkvæmdir við sundlaug Stykkishólms ganga vel

Eins og greint var nýverið frá í Skessuhorni er sundlaugin í Stykkishólmi lokuð þessa dagana vegna viðhalds. Fram kemur á vef sveitarfélagsins að viðhaldsframkvæmdir gangi vel en búið er að reisa einfalda yfirbyggingu yfir sundlaugina til að forðast vætu á meðan á framkvæmdum stendur. Á meðan unnið er að endurbótum á yfirborðsefni sundlaugarinnar er tíminn…Lesa meira

true

Um þriðjungur Íslendinga kaupir fötin á netinu

Tæplega þriðjungur Íslendinga kaupir föt og skó á netinu á meðan aðrir gera sér ferð út í búð. Þetta er niðurstaða könnunar sem Rannsóknasetur verslunarinnar framkvæmdi. Þar kemur fram að Íslendingar kaupa fjórfalt meira af fötum í erlendri netverslun en af íslenskum fataverslanafyrirtækjum sem bjóða upp á netverslun. Tæplega annar hver hlutur sem Íslendingar flytja…Lesa meira