
Hvassviðri á Snæfellsnesi fram undir kvöld
Í dag verður suðaustan 15-23 m/s á Snæfellsnesi og snarpar hviður. Breiðafjörður er nú eina spásvæði landsins þar sem gul viðvörun er í gildi, en henni lýkur klukkan 17 í dag. „Varasamt ferðaveður fyrir öktæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið,“ segir Veðurstofufólk.