
Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Ljósmyndir: tfk
Útskrift frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Síðastliðinn föstudag voru 27 nemendur útskrifaðir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Tíu nemendur luku námi á félags- og hugvísindabraut, tveir luku námi á náttúru- og raunvísindabraut, tveir af nýsköpunar- og frumkvöðlabraut, átta luku námi á opinni braut, þrír á starfsbraut og tveir nemendur luku viðbótarnámi til stúdentsprófs. Með þessum hópi hefur skólinn nú útskrifað 597 nemendur frá fyrstu útskriftinni sem var í desember 2005. Til gamans má geta þess að nemendur koma víða að, en í útskriftarhópnum nú voru nemendur úr tíu póstnúmerum. Á fyrstu árum skólans komu nemendur fyrst og fremst af upptökusvæði skólans, þ.e. Snæfellsnesi, en í dag eru nemendur alls staðar af að landinu.