
Yfirbyggingin yfir sundlaugina. Ljósm. stykkisholmur.is
Framkvæmdir við sundlaug Stykkishólms ganga vel
Eins og greint var nýverið frá í Skessuhorni er sundlaugin í Stykkishólmi lokuð þessa dagana vegna viðhalds. Fram kemur á vef sveitarfélagsins að viðhaldsframkvæmdir gangi vel en búið er að reisa einfalda yfirbyggingu yfir sundlaugina til að forðast vætu á meðan á framkvæmdum stendur. Á meðan unnið er að endurbótum á yfirborðsefni sundlaugarinnar er tíminn einnig vel nýttur í önnur viðhaldsverkefni. Má til dæmis nefna smávægilegar lagfæringar á innilaug, endurbætur á flísalögn í kringum laugar, viðhald á sturtuklefum og fleira.