Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Ljósm. MB

Brautskráning frá Menntaskóla Borgarfjarðar

Í gær voru 34 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Kolbrún Líf Lárudóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Kolbrún hvatti samnemendur sína til að fagna deginum og sagði meðal annars: „Þessi þrjú ár sem að ég hef verið í MB hafa verið krefjandi, fjölbreytt, skemmtileg en fyrst og fremst stútfull af æðislegum minningum og upplifunum. Ég held að ég tali fyrir hönd allra nemenda þegar ég segi að MB sé eins og annað heimili okkar, nema kannski með aðeins fleiri sófum til þess að leggja sig í.“

Brautskráning frá Menntaskóla Borgarfjarðar - Skessuhorn