Útskriftarhópurinn vorið 2024 með skólameistara og aðstoðarskólameistara. Ljósm. FVA

Stór hópur útskrifaður úr Fjölbrautaskóla Vesturlands

Í gær voru 78 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, af níu mismunandi námsbrautum. 15 ljúka burtfararprófi úr rafvirkjun og einn bæði burtfararprófi í rafvirkjun og viðbótarnámi til stúdentsprófs. Einn lauk burtfararprófi í vélvirkjun og einn útskrifast úr meistaraskólanum. Þrír ljúka burtfararprófi af sjúkraliðabraut. 29 luku stúdentsprófi af opinni stúdentsbraut, tveir af félagsfræðabraut og 15 af náttúrufræðabraut. Þrír nemendur útskrifuðust af starfsbraut. Níu ljúka viðbótarnám til stúdents eftir nám í iðngrein. Ole Pétur Ahlbrecht, nýútskrifaður rafvirki, hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan námsárangur með vegna meðaleinkunn 9,53.

Stór hópur útskrifaður úr Fjölbrautaskóla Vesturlands - Skessuhorn