Rafmagnslaust um tíma á morgun

Rarik tilkynnti í morgun um að rafmagnslaust verður frá aðveitustöð á Vegamótum að Fíflholtum á Mýrum frá klukkan 11.00-17.00 á morgun, þriðjudaginn 28. maí. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar.

Einnig verður rafmagnslaust á Melasveitarlínu frá aðveitustöðinni á Brennimel til og með Þjófaklettum, þriðjudaginn 28. maí, frá klukkan 17.00-20.00.

Rafmagnslaust um tíma á morgun - Skessuhorn