Fréttir

true

Hvassviðri á Snæfellsnesi fram undir kvöld

Í dag verður suðaustan 15-23 m/s á Snæfellsnesi og snarpar hviður. Breiðafjörður er nú eina spásvæði landsins þar sem gul viðvörun er í gildi, en henni lýkur klukkan 17 í dag. „Varasamt ferðaveður fyrir öktæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið,“ segir Veðurstofufólk.Lesa meira

true

Sissi lætur gamlan draum rætast

Viðtal úr safni Skessuhorns frá árinu 2008 Í Borgarnesi var nýlega tekið í notkun eitt fullkomnasta upptökuver landsins og hefur það fengið nafnið Gott hljóð. Þótt ekki sé það stórt í fermetrum talið, er allur tæknibúnaður og aðstaða með besta móti. Það er Sigurþór Kristjánsson, tónlistarmaður, “tæknigúrú” og starfsmaður í félagsmiðstöðinni Óðali til margra ára…Lesa meira

true

Framkvæmdir við sundlaug Stykkishólms ganga vel

Eins og greint var nýverið frá í Skessuhorni er sundlaugin í Stykkishólmi lokuð þessa dagana vegna viðhalds. Fram kemur á vef sveitarfélagsins að viðhaldsframkvæmdir gangi vel en búið er að reisa einfalda yfirbyggingu yfir sundlaugina til að forðast vætu á meðan á framkvæmdum stendur. Á meðan unnið er að endurbótum á yfirborðsefni sundlaugarinnar er tíminn…Lesa meira

true

Um þriðjungur Íslendinga kaupir fötin á netinu

Tæplega þriðjungur Íslendinga kaupir föt og skó á netinu á meðan aðrir gera sér ferð út í búð. Þetta er niðurstaða könnunar sem Rannsóknasetur verslunarinnar framkvæmdi. Þar kemur fram að Íslendingar kaupa fjórfalt meira af fötum í erlendri netverslun en af íslenskum fataverslanafyrirtækjum sem bjóða upp á netverslun. Tæplega annar hver hlutur sem Íslendingar flytja…Lesa meira

true

Atvinnuleysi mælist nú 3,6%

Í apríl síðastliðnum voru 8.500 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 3,6%, hlutfall starfandi var 79,7% og atvinnuþátttaka 82,7%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 0,9 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi jókst um tvö prósentustig og atvinnuþátttaka jókst einnig eða um 1,4 stig.Lesa meira

true

Alda sá um Skagakonur í sigri Fram

ÍA og Fram mættust í þriðju umferð Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn í logninu í Akraneshöllinni. Fyrsta færi leiksins kom á 9. mínútu þegar Erna Björt Elíasdóttir átti góða sendingu inn á markteig Fram þar sem Erla Karitas Jóhannesdóttir var á auðum sjó en í staðinn fyrir að skjóta á markið…Lesa meira

true

Benda á hrunhættu vegna mikillar úrkomu

Spáð er mikilli úrkomu næsta sólarhringinn á sunnanverðum Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Samhliða því eykst hætta á skriðum og grjóthruni í bröttum hlíðum. Veðurstofan vill koma þessu á framfæri.Lesa meira

true

Kjördeildum við forsetakosningar fækkað í Borgarbyggð

Við forsetakosningarnar 1. júní næstkomandi verður í fyrsta skipti einungis kosið í fjórum kjördeildum í sveitarfélaginu Borgarbyggð, en ekki sex eins og í mörgum undanförnum kosningum. Nú verður kosið í Borgarnesi, Lindartungu, Þinghamri og á Kleppjárnsreykjum. Undir lok árs 2022 samþykkti sveitarstjórn breytingar á samþykktum sveitarfélagsins sem fólu í sér þessa fækkun. Búið er að…Lesa meira

true

Fjárfestingastuðningur í sauðfjárrækt og nautgriparækt

Matvælaráðuneytið hefur lokið yfirferð umsókna um fjárfestingastuðning í nautgriparækt og sauðfjárrækt vegna framkvæmda á árinu 2024. Í nautgriparækt bárust 138 umsóknir, þar af voru 62 vegna nýframkvæmda og 76 vegna endurbóta á eldri byggingum. Heildarkostnaður við fjárfestingar nautgripabænda vegna framkvæmda á árinu 2024 er samkvæmt umsóknum tæpir fimm milljarðar króna. Til úthlutunar eru 268 millj.…Lesa meira

true

Límtré Vírnet eitt af fyrirtækjum ársins 2024 hjá VR

VR hefur birt niðurstöður könnunar um Fyrirtæki ársins 2024. Voru þær kynntar við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær og afhentar viðurkenningar til fyrirtækja í þremur stærðarflokkum. Þessi könnun VR er stærsta vinnumarkaðsrannsókn á Íslandi og á sér yfir aldarfjórðungs sögu. Gallup lagði könnunina fyrir og sá um úrvinnslu niðurstaðna. Í flokki stórra fyrirtækja, með…Lesa meira