Fulltrúar Límtrés Vírnets stoltir með sína viðurkenningu. Ljósm. aðsend

Límtré Vírnet eitt af fyrirtækjum ársins 2024 hjá VR

VR hefur birt niðurstöður könnunar um Fyrirtæki ársins 2024. Voru þær kynntar við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær og afhentar viðurkenningar til fyrirtækja í þremur stærðarflokkum. Þessi könnun VR er stærsta vinnumarkaðsrannsókn á Íslandi og á sér yfir aldarfjórðungs sögu. Gallup lagði könnunina fyrir og sá um úrvinnslu niðurstaðna.

Límtré Vírnet eitt af fyrirtækjum ársins 2024 hjá VR - Skessuhorn