
Nýtt fjós er nú í byggingu á Helgavatni í Þverárhlíð. Myndin tengist þó ekki fréttinni með beinum hætti. Ljósm. Skessuhorn/hig
Fjárfestingastuðningur í sauðfjárrækt og nautgriparækt
Matvælaráðuneytið hefur lokið yfirferð umsókna um fjárfestingastuðning í nautgriparækt og sauðfjárrækt vegna framkvæmda á árinu 2024. Í nautgriparækt bárust 138 umsóknir, þar af voru 62 vegna nýframkvæmda og 76 vegna endurbóta á eldri byggingum. Heildarkostnaður við fjárfestingar nautgripabænda vegna framkvæmda á árinu 2024 er samkvæmt umsóknum tæpir fimm milljarðar króna. Til úthlutunar eru 268 millj. kr. og styrkhlutfall reiknast um 5,4% af heildarfjárfestingakostnaði.