Svipmynd úr Borgarneskjördeild 2012. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Kjördeildum við forsetakosningar fækkað í Borgarbyggð

Við forsetakosningarnar 1. júní næstkomandi verður í fyrsta skipti einungis kosið í fjórum kjördeildum í sveitarfélaginu Borgarbyggð, en ekki sex eins og í mörgum undanförnum kosningum. Nú verður kosið í Borgarnesi, Lindartungu, Þinghamri og á Kleppjárnsreykjum. Undir lok árs 2022 samþykkti sveitarstjórn breytingar á samþykktum sveitarfélagsins sem fólu í sér þessa fækkun. Búið er að fella niður kjördeildir í Lyngbrekku á Mýrum og á Brúarási í Hálsaveit.

Kjördeildum við forsetakosningar fækkað í Borgarbyggð - Skessuhorn