Fréttir

true

Vilja útvista rekstur upplýsingamiðstöðvar

Grundarfjarðarbær kannar nú áhuga mögulegra rekstrar- eða þjónustuaðila í sveitarfélaginu til að reka upplýsingamiðstöð fyrir hönd bæjarins í þrjá mánuði í sumar. Þetta kemur fram á upplýsingasíðu bæjarins. Þar segir að leitað sé að aðila sem hefur getu til að taka að sér rekstur meginhluta starfsemi upplýsingamiðstöðvar. Rekstur myndi hefjast í kringum 5. – 10.…Lesa meira

true

Kanturinn lét undan síga

Í morgun þegar olíuflutningabíl var ekið niður heimreiðina að Hrísum í Flókadal vildi ekki betur til en svo að vegkanturinn gaf sig og situr bíllinn pikkfastur. Hægara sagt en gert er að ná bílnum upp en heildarþunginn er um 26 tonn. Von er á öðrum bíl til að létta farminum af þessum svo hægt verði…Lesa meira

true

Sveitarfélaginu er skylt að innheimta sorpgjöld

Eigandi Daltúns í Borgarbyggð lagði í janúar síðastliðnum fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem hann kærði þá ákvörðun Borgarbyggðar að innheimta sorpgjald af lögbýli hans í sveitarfélaginu fyrir rekstur grenndar- og sorpstöðvar á sama tíma og öllum grenndarstöðvum utan Borgarness hafi verið lokað. Einungis sé hægt að nálgast grenndarstöð við Sólbakka í…Lesa meira

true

Andlát – Hendrik Björn Hermannsson veitingamaður

Hendrik Björn Hermannsson veitingamaður á Hvanneyri er látinn, 49 ára að aldri. Hann varð bráðkvaddur síðastlinn mánudag. Hendrik hefur starfað við veitingasölu um árabil, síðustu árin á Hvanneyri og rak m.a. veisluþjónustuna H-veitingar. Hendrik var sonur Kristínar Benediktsdóttur og Hermanns Gunnarssonar, sem best var þekktur sem Hemmi Gunn. Hendrik lætur eftir sig son á þrítugsaldri.…Lesa meira

true

Árni Marinó bjargaði stigi fyrir ÍA

Fram og ÍA mættust í 7. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal. Fyrir leik var Fram með ellefu stig í 5. sæti og ÍA með níu stig í því áttunda. Fyrsta færi leiksins fékk Hinrik Harðarson á 11. mínútu þegar hann slapp í gegnum vörn Fram…Lesa meira

true

Pétur Már Sigurðsson tekur við þjálfun Skallagríms

Tilkynnt var í gær að körfuknattleiksdeild Skallagríms hafi náð að semja við Pétur Má Sigurðsson um þjálfun meistaraflokks karla. Skrifar Pétur undir tveggja ára samning en hann tekur við liðinu af Atla Aðalsteinssyni sem stýrt hefur því undanfarin ár. Auk þess mun Pétur sitja í gæðahópi þjálfara sem hefur það markmið að mynda, skýra og…Lesa meira

true

Sigur í fyrsta heimaleik Skallagríms

Það var vel mætt í áhorfendastúkuna í Borgarnesi í gær þegar Skallagrímur tók á móti KFS frá Vestmannaeyjum í annarri umferð 4. deildar karla í knattspyrnu. Nokkur vindur var, sem er ekki óalgengt í Borgarnesi, en liðin sýndu ágætis takta í fyrri hálfleik. Skallagrímur náði nokkrum sinnum að opna vörn KFS en gerði ekki nægilega…Lesa meira

true

Mikil ánægja með Höllina í Ólafsvík – umfjöllun og myndasyrpa

„Lítum svo á að góð félagsaðstaða eldri borgara sé sjálfsögð grunnþjónusta“ – segir bæjarstjórinn Nýverið var Landsfundur eldri borgara (LEB), haldinn í Reykjavík. Um 160 fulltrúar frá 55 aðildarfélögum LEB áttu þar seturétt. Innan vébanda félagsins eru um 37 þúsund eldri borgarar sem hafa m.a. það markmið að berjast fyrir bættum kjörum hér á landi.…Lesa meira

true

Þú getur hvílt hugann á hlaupum

Rætt við langhlauparann Jósep Magnússon, um ástríðu hans fyrir að hlaupa „Langhlaupin geta gengið illa eins og annað í lífinu og þú þarft að tækla það einhvern veginn. Þú verður að bera virðingu fyrir hlaupum, því það getur ýmislegt gengið á, hvort sem það er dagsformið, veðrið eða aðrar áskoranir,“ segir Jósep þegar blaðamaður settist…Lesa meira

true

Flugbannssvæði við Vatnsholtsvötn í Staðarsveit

Sett hefur verið upp sjálfvirk veðurdrónastöð við Vatnsholtsvötn í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Það er fyrirtækið Menapia sem séð hefur um uppsetningu ýmissa tækja á svæðinu. Þar er dróni sem tekur sig á loft, beint upp í um tveggja kílómetra hæð og tekur veðurupplýsingar. Veðrið í Staðarsveit hefur löngum verið mikið rannsóknarefni en fyrirtækið er í…Lesa meira