Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj

Sveitarfélaginu er skylt að innheimta sorpgjöld

Eigandi Daltúns í Borgarbyggð lagði í janúar síðastliðnum fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem hann kærði þá ákvörðun Borgarbyggðar að innheimta sorpgjald af lögbýli hans í sveitarfélaginu fyrir rekstur grenndar- og sorpstöðvar á sama tíma og öllum grenndarstöðvum utan Borgarness hafi verið lokað. Einungis sé hægt að nálgast grenndarstöð við Sólbakka í Borgarnesi, um 44 kílómetrum frá heimili viðkomandi. Krafðist hann þess að ákvörðun sveitarfélagsins um álagningu yrði felld úr gildi.

Sveitarfélaginu er skylt að innheimta sorpgjöld - Skessuhorn