
Hendrik Björn Hermannsson. Ljósm. Skessuhorn/arg
Andlát – Hendrik Björn Hermannsson veitingamaður
Hendrik Björn Hermannsson veitingamaður á Hvanneyri er látinn, 49 ára að aldri. Hann varð bráðkvaddur síðastlinn mánudag. Hendrik hefur starfað við veitingasölu um árabil, síðustu árin á Hvanneyri og rak m.a. veisluþjónustuna H-veitingar. Hendrik var sonur Kristínar Benediktsdóttur og Hermanns Gunnarssonar, sem best var þekktur sem Hemmi Gunn. Hendrik lætur eftir sig son á þrítugsaldri.