Fréttir

true

Þú getur hvílt hugann á hlaupum

Rætt við langhlauparann Jósep Magnússon, um ástríðu hans fyrir að hlaupa „Langhlaupin geta gengið illa eins og annað í lífinu og þú þarft að tækla það einhvern veginn. Þú verður að bera virðingu fyrir hlaupum, því það getur ýmislegt gengið á, hvort sem það er dagsformið, veðrið eða aðrar áskoranir,“ segir Jósep þegar blaðamaður settist…Lesa meira

true

Flugbannssvæði við Vatnsholtsvötn í Staðarsveit

Sett hefur verið upp sjálfvirk veðurdrónastöð við Vatnsholtsvötn í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Það er fyrirtækið Menapia sem séð hefur um uppsetningu ýmissa tækja á svæðinu. Þar er dróni sem tekur sig á loft, beint upp í um tveggja kílómetra hæð og tekur veðurupplýsingar. Veðrið í Staðarsveit hefur löngum verið mikið rannsóknarefni en fyrirtækið er í…Lesa meira

true

Þorsteinn vann úrtökumót í hjólreiðum

Hjólreiðakappinn Þorsteinn Bárðarson frá Rifi keppti á úrtökumóti fyrir HM í Skotlandi í Gravel keppni í hjólreiðum á laugardaginn. Þorsteinn, sem keppti í flokki 45-49 ára, varð í 1. sæti og fer því á Heimsmeistaramótið í Belgíu sem verður haldið í október á þessu ári. Í Gravel hjólreiðakeppni er hjólað á malarvegi og utan vegar…Lesa meira

true

Reynir tapaði stórt gegn Herði

Hörður Ísafirði og Reynir Hellissandi mættust í B riðli 5. deildar karla í knattspyrnu á sunnudaginn og var leikurinn á Kerecisvellinum á Ísafirði. Það blés ekki byrlega fyrir gestunum í leiknum því eftir rúmlega hálftíma leik voru leikmenn Harðar búnir að skora fjögur mörk og staðan í hálfleik 4-0 fyrir Herði. Fimmta mark heimamanna kom…Lesa meira

true

Samningar undirritaðir vegna fyrsta áfanga nýs íþróttahúss

Gengið hefur verið frá samningum vegna fyrsta áfanga nýs íþróttahúss við Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit. Samið var um jarðvinnu, uppsteypu, frágang utanhúss ásamt grófjöfnun lóðar. Um er að ræða tvo samninga, annars vegar við K16 ehf. um bygginguna og hins vegar við Eflu hf. um verkefnastjórn, byggingarstjórn og eftirlit. Þetta kemur fram á vefsíðu Hvalfjarðarsveitar. Framkvæmdir…Lesa meira

true

TeamTinna hélt söngveislu í Bíóhöllinni

Síðastliðið föstudagskvöld stóð félagið TeamTinna á Akranesi fyrir söngveislu þar sem gleðin var við völd; Sing-a-long partý í Bíóhöllinni. Þar mætti söngkonan Guðrún Árný á svið og stýrði fjöldasöng í anda – og til minningar um gleðisprengjuna Tinnu Ósk Grímarsdóttur sem féll frá í byrjun síðasta árs. Fólk bar fram óskir um lög en Guðrún…Lesa meira

true

Markasúpa í Akraneshöllinni

Kári og Vængir Júpiters mættust á föstudagskvöldið í 3. deild karla í knattspyrnu í Akraneshöllinni þar sem boðið var upp á alvöru markaveislu og almenna skemmtun. Fjörið hófst á 17. mínútu þegar Axel Freyr Ívarsson kom Kára yfir en aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði Rafael Máni Þrastarson metin fyrir gestina. Hann var síðan aftur á…Lesa meira

true

Misserisverkefni Háskólans á Bifröst varin í Hjálmakletti

Misserisvarnir nemenda við Háskólann á Bifröst eru á meðal þess sem veitir skólanum sérstöðu í samanburði við aðra háskóla. Þessi siður; að nemendur, kennarar og starfsfólk hittist á vorin og rýni til gagns málefni líðandi stundar. hefur fylgt Háskólanum á Bifröst frá upphafi. Misserisvarnir felast í því að nemendur koma sér saman um rannsóknarverkefni. Úrvinnsla…Lesa meira

true

Skagakonur duttu út eftir vítaspyrnukeppni

Grindavík og ÍA áttust við í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Stakkavíkurvellinum í Safamýri. Tinna Hrönn Einarsdóttir kom Grindavík yfir í leiknum á 41. mínútu þegar hún fékk boltann vel fyrir utan vítateig, hún sneri varnarmann ÍA af sér og þrumaði boltanum með vinstri fæti upp í samskeytin…Lesa meira

true

Luke Williams hetja Ólsara gegn Þrótti

Víkingur Ólafsvík tók á móti Þrótti Vogum í þriðju umferð 2. deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram á Ólafsvíkurvelli við góðar aðstæður en frekar kalt var samt í veðri. Luke Williams kom heimamönnum yfir í leiknum á 20. mínútu með marki úr vítaspyrnu og staðan 1-0 í hálfleik. Dómari leiksins, Arnar…Lesa meira