Guðrún Árný á sviðinu. Ljósm. mm

TeamTinna hélt söngveislu í Bíóhöllinni

Síðastliðið föstudagskvöld stóð félagið TeamTinna á Akranesi fyrir söngveislu þar sem gleðin var við völd; Sing-a-long partý í Bíóhöllinni. Þar mætti söngkonan Guðrún Árný á svið og stýrði fjöldasöng í anda - og til minningar um gleðisprengjuna Tinnu Ósk Grímarsdóttur sem féll frá í byrjun síðasta árs. Fólk bar fram óskir um lög en Guðrún Árný er þeim hæfileikum gædd að hún getur spilað og sungið nánast hvað sem beðið er um. Stemningin var frábær á þessari kvöldstund.

TeamTinna hélt söngveislu í Bíóhöllinni - Skessuhorn