Erna Björt skoraði fyrra mark ÍA gegn Grindavík. Ljósm. vaks

Skagakonur duttu út eftir vítaspyrnukeppni

Grindavík og ÍA áttust við í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Stakkavíkurvellinum í Safamýri. Tinna Hrönn Einarsdóttir kom Grindavík yfir í leiknum á 41. mínútu þegar hún fékk boltann vel fyrir utan vítateig, hún sneri varnarmann ÍA af sér og þrumaði boltanum með vinstri fæti upp í samskeytin fjær. Glæsilega gert og staðan í hálfleik 1-0.

Skagakonur duttu út eftir vítaspyrnukeppni - Skessuhorn