Fréttir

true

Bátsverjum víða komið til hjálpar

Dagurinn hefur verið annasamur hjá áhöfnum björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Rétt fyrir klukkan 9 í morgun voru björgunarsveitir frá Sauðárkróki og Hofsósi ásamt björgunarskipinu Sigurvin á Siglufirði kallaðar út vegna strandveiðibáts með óvirkt stýri. Björgunarbáturinn Skafti og björgunarskipið Sigurvin fóru á vettvang. Sigurvin dró svo bátinn til Siglufjarðar. Upp úr klukkan 15 var svo áhöfn björgunarskipsins…Lesa meira

true

Heimsfrægur hönnuður velur Breið á Akranesi fyrir hótel

Hinn heimsfrægi hönnuður og arkitekt, Philippe Starck, hefur valið Breiðina á Akranesi sem ákjósanlegan stað til að hanna á nýtt hótel. Fyrir um ári síðan birtist grein í Morgunblaðinu þess efnis að Starck væri að leita sér að lóð við sjávarsíðuna á Íslandi til þess að hanna „fallegasta hótel í heimi,“ eins og hann orðaði…Lesa meira

true

Bágt ástand vega á Vesturlandi til umræðu á fundi sveitarstjórnarfólks

Síðastliðinn föstudag var sveitarstjórnarfólk á Vesturlandi boðað til fundar um vegamál og fór hann fram í Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi. Til fundarins boðuðu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Gestir voru vegamálastjóri og þeir þingmenn Norðvesturkjördæmis sem sáu ástæðu til að mæta. Í upphafi fundar fór Páll S Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV yfir bága stöðu í viðhaldi…Lesa meira

true

Hvalfjarðargöng lokuð um tíma að kvöldi 15. maí

Vegagerðin hefur tilkynnt um lokun á Hvalfjarðargöngum að kvöldi miðvikudagsins 15. maí frá klukkan 21.00-23.00. Þá mun fara fram brunaæfing í göngunum. Hjáleið verður um Hvalfjörð meðan lokunin varir. Fram kemur í tilkynningu að æfingin verður umfangsmikil en hún er á vegum Vegagerðarinnar, Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. „Lokanir verða við gatnamót Hringvegar…Lesa meira

true

Gámasvæði til fyrirmyndar

Móttaka fyrir sorp til endurvinnslu er staðsett í vesturjaðri Melahverfis í Hvalfjarðarsveit. Áskell Þórisson í Ægissíðu, og fyrrum Bændablaðsritstjóri, var að nota svæðið í morgun og sagði það vera til hreinnar fyrirmyndar. „Svo einfalt er það,“ sagði hann og sendi Skessuhorni meðfylgjandi mynd. „Mér sýnist líka að það sé boðið upp á alla þá flokka…Lesa meira

true

Jafntefli hjá Reyni og Smára í fyrsta leik

Reynir Hellissandi tók á móti Smára í fyrstu umferð í B riðli 5. deildar karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Lítið markvert gerðist fyrsta hálftímann í leiknum en þá gerðu Reynismenn tvær skiptingar með þriggja mínútna millibili. Út af fóru þeir Kári Viðarsson sem verður fertugur seint á árinu og Dominik…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu fyrir FHL í markaleik

FHL og ÍA tókust á í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í gær og var leikurinn í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Heimakonur byrjuðu betur í leiknum og komust yfir með marki frá Emmu Hawkins á 19. mínútu. Sjö mínútum síðar eftir gott uppspil ÍA fékk Erla Karitas Jóhannesdóttir knöttinn úti á kanti, geystist með hann í átt…Lesa meira

true

Flottir fiskar á land í kósýferð í Leirá

„Við, Sara Huld Halldórsdóttir konan mín, vorum að plana að taka eina nótt í bústað eða á hóteli,“ sagði Ómar Smári Óttarsson í samtali við tíðindamann Skessuhorns og bætti við: „Ég náttúrulega ákvað að slá tvær flugur í einu höggi og keypti dag í Leirá þar sem er lítið huggulegt veiðihús og auðvitað þá gat…Lesa meira

true

Raftar buðu í kaffi í Þinghamri

Það var margt um manninn í og við félagsheimilið Þinghamar í Stafholtstungum á laugardaginn þegar Raftar, bifhjólafjelag Borgarfjarðar, buðu gestum í kaffi og vöfflur. Ökumenn á fjölmörgum bifhjólum litu við til að styrkja starf Raftanna en skráðir félagar eru 132 en um 50 þeirra eru virkir. Nokkur mikil umræða var á staðnum um landsmót bifhjólafólks…Lesa meira

true

Víkingur náði jafntefli fyrir austan

Önnur umferð 2. deildar karla í knattspyrnu fór fram á laugardaginn og í Fjarðarbyggðarhöllinni á Reyðarfirði tóku heimamenn í KFA á móti Víkingi Ólafsvík. KFA komst yfir á 18. mínútu þegar Marteinn Már Sverrisson komst inn fyrir vörn Víkings, hann átti skot með vinstri fæti og inn lak boltinn. Fimm mínútum síðar fengu heimamenn hornspyrnu…Lesa meira