
Svipmynd frá fundinum sem haldinn var í Breiðabliki. Ljósm. mm
Bágt ástand vega á Vesturlandi til umræðu á fundi sveitarstjórnarfólks
Síðastliðinn föstudag var sveitarstjórnarfólk á Vesturlandi boðað til fundar um vegamál og fór hann fram í Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi. Til fundarins boðuðu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Gestir voru vegamálastjóri og þeir þingmenn Norðvesturkjördæmis sem sáu ástæðu til að mæta. Í upphafi fundar fór Páll S Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV yfir bága stöðu í viðhaldi og endurbótum á vegum í landshlutanum. Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar lýsti ástandinu í vegamálum á landsvísu, fór yfir fjárveitingar til málaflokksins, skuld sem byggst hefur upp við viðhald vega og ræddi þá alvarlegu stöðu sem upp er komin þegar vegir á Vesturlandi hafa látið undan síga.