Fréttir

true

Brugðu sér í bæjarferð

Sjöundi bekkur í Grunnskólanum í Borgarnesi brá sér í betri fötin á dögunum og skellti sér til Reykjavíkur þriðjudaginn 30. apríl í boði Faxaflóahafna. „Okkur var boðið í sjóferð um sundin blá en það er fræðsluferð sem grunnskólabörnum er boðið í. Okkur til mikillar ánægju breyttist ferðin óvænt því á vegi okkar sáum við hrefnur…Lesa meira

true

Þróttur fékk verk á Sementsreit

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar 29. apríl sl. var lögð fram opnunarskýrsla tilboða í verkið “Sementsreitur austur – Gatnagerð og veitur,“ en tilboðin voru opnuð fjórum dögum fyrr eða á sumardaginn fyrsta. Tvö tilboð bárust í verkið og voru þau bæði undir kostnaðaráætlun sem var rúmar 357 milljónir króna. Þróttur ehf. var með tilboð…Lesa meira

true

Borgarverk endurnýjar Sæunnargötu

Til stendur að ráðast í endurnýjun, gatnagerð og veitulagnir við Sæunnargötu í Borgarnesi. Verkið hefur verið boðið út og kom fram á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku að Borgarverk hafi átt lægsta tilboð, að fjárhæð 148,5 milljónir króna. Byggðarráð samþykkti að taka tilboðinu.Lesa meira

true

Kári hóf leik með stórsigri á Elliða

Fyrsta umferð 3. deildar karla í knattspyrnu hófst á föstudagskvöldið og í Akraneshöllinni mættust lið Kára og Elliða. Fyrir mót hafði liði Kára verið spáð efsta sætinu í deildinni hjá fotbolti.net og þeir komu fullir sjálfstrausts inn í leikinn. Þeir voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik án þess þó að ná að opna lið Elliða…Lesa meira

true

Bilun varð í búnaði vatnsveitu á Akranesi

Vatnsveitan á Akranesi fær vatn frá þremur vatnsbólum; Berjadalsá og lindasvæðum við Slögu og Óslæk. Vatnið er allt gegnumlýst til að tryggja heilnæmi þess. Fram kemur í tilkynningu frá Veitum að á fimmtudaginn kom upp bilun í öðru af tveimur gegnumlýsingartækjum vatnsveitunnar með þeim afleiðingum að hluti af vatninu fór ólýstur inn á dreifikerfið. Þegar…Lesa meira

true

Hoppukastalamessa í Reykholti

Klukkan 11 í gærmorgun var barnamessa í anda Séra Hildar Bjarkar í Reykholti. Þemað var: „Guð og trú er kaotísk,“ sagði Hildur Björk en af þessu tilefni voru settir upp fjórir hoppukastalar inni í kirkjunni. „Hvað er kaotískara en það?“ Eftir gleði og söng voru hoppukastalarnir blásnir upp og sælgæti og candy flos framreitt. Utan…Lesa meira

true

Gleymdu að verið var að sjóða egg

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var skömmu fyrir hádegi í dag kallað út á hæsta forgangi að einbýlishúsi við Bjarkargrund á Akranesi. Tilkynnt hafði verið um eld í húsinu. Í ljós kom að húsráðendur höfðu gleymt að þeir voru að sjóða egg og brugðið sér af bæ. Fólk var að vinna í lóð næsta húss og…Lesa meira

true

Víkingur Ó. með sigur í fyrsta leik

Víkingur Ólafsvík og Völsungur frá Húsavík mættust í fyrstu umferð í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Eftir markalausan fyrri hálfleik fóru hlutirnir að gerast og fyrsta markið kom strax í byrjun seinni hálfleiks. Það skoraði Luke Williams, fyrirliði Víkings, og aðeins fimm mínútum síðar skoraði markahrókurinn Gary Martin annað mark Víkings, staðan 2-0…Lesa meira

true

Röst styrkir verkefni þar sem rannsaka á haffræði Hvalfjarðar

Hið nýstofnaða Röst sjávarrannsóknasetur hefur veitt Hafrannsóknastofnun Íslands 60 milljóna króna styrk til að framkvæma rannsóknir á haffræði Hvalfjarðar. Markmið rannsóknanna er að afla gagna til að berjast gegn loftslagsbreytingum og undirbúa tilraunir með nýja aðferð við að fjarlægja koldíoxíð úr andrúmsloftinu. Verkefnið felur í sér að Hafrannsóknastofnun mun gera grunnrannsóknir á því hvernig sjávarumhverfið…Lesa meira

true

Stjarnan skellti Skagamönnum

Stjarnan og ÍA áttust við í fimmtu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær og var viðureignin á Samsungvellinum í Garðabæ. Gestirnir komust yfir á níundu mínútu leiksins þegar Árni Salvar Heimisson fékk boltann á hægri kantinum, hann átti góða fyrirgjöf sem rataði beint á Hinrik Harðarson og hann afgreiddi boltann snyrtilega í netið.…Lesa meira