Fréttir

true

Metár að baki hjá íslenskri ferðaþjónustu

Síðasta ár var metár í íslenskri ferðaþjónustu á flesta mælikvarða, þó ekki hafi verið slegið met í fjölda ferðamanna. Hlutur ferðaþjónustunnar af landsframleiðslu var um 8,8% í fyrra og hefur aldrei verið stærri. Í nýrri hagspá er gert ráð fyrir að fjöldi ferðamanna í ár jafni metið frá 2018 og að verðmætin sem greinin skili…Lesa meira

true

Miklar framkvæmdir og góð afkoma Snæfellsbæjar á síðasta ári

Ársreikningur bæjarsjóðs Snæfellsbæjar var tekinn til síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar síðdegis í gær. Þar kemur meðal annars fram að rekstur Snæfellsbæjar kom mun betur út en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir og var rekstur samstæðunnar jákvæður um 350 milljónir króna, en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á um 104 m.kr. Þar…Lesa meira

true

Nóg fyrir stafni í leikskólanum Uglukletti

Á síðustu vikum hefur ýmislegt verið brallað í leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi, en þetta kemur fram á heimasíðu skólans. Elstu börnin fóru til að mynda í heimsókn þar sem þau prófuðu að vera nemendur í grunnskólanum í þrjá daga. Þau gerðu ýmislegt, fóru til dæmis í íþróttir og sund og gerðu margt fleira skemmtilegt. Ugluklettur…Lesa meira

true

Norðurland eystra sigurvegari kjördæmamóts í bridds

Kjördæmamót í bridds var spilað á Fosshótel Stykkishólmi um síðustu helgi. 36 sveitir tóku þar þátt af öllu landinu, auk fjögurra sveita frá Færeyjum. Kjördæmameistarar urðu A sveit Norðurlands eystra og í öðru sæti varð C sveit þeirra. B sveit Norðurlands eystra varð svo í sjöunda sæti. Þriðja sæti náði D sveit Reykjaness. Það voru…Lesa meira

true

Skerðingum raforku til flestra stórnotenda hefur verið hætt

Landsvirkjun hefur nú lagt að mestu af skerðingar á afhendingu raforku til stórnotenda. Undanskilið eru fiskþurrkunarverksmiðjur og gagnaver fyrir rafmyntagröft. Fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun að þetta er um 3-5 vikum fyrr en reiknað hafði verið með um miðjan síðasta mánuð. Staða í miðlunarlónum Landsvirkjunar batnar nú nokkuð ört og mikill snjór á hálendinu…Lesa meira

true

Séra Guðrún Karls kjörin biskup Íslands

Í hádeginu í dag lauk talningu í kosningum um embætti biskups Íslands, en tveir voru í kjöri í þessari síðari umferð kosningar í embættið; þau Guðmundur Karl Brynjarsson og Guðrún Karls Helgudóttir. Úrslit urðu þau að sr. Guðrún hlaut fleiri atkvæði, eða 1.060 sem er 52,19%. Guðmundur Karl hlaut 954 atkvæði eða 46,97%. Á kjörskrá…Lesa meira

true

Garðyrkjuspjall í Safnahúsi – Fræ- og plöntuskiptavika hafin

Sædís Guðlaugsdóttir garðyrkjufræðingur tók á móti gestum og gangandi í gær í Safnahúsi Borgarfjarðar og upplýsti um vorverkin í garðinum og ræktun. Mjög fróðlegt spjall átti sér stað þar sem gestir komu með spurningar sem Sædís svaraði um hæl, enda hafsjór af fróðleik um ræktun. Á sama tíma hófst skemmtilegt verkefni hjá safnahúsi sem nefnist…Lesa meira

true

Alvarlegt vinnuslys í Grundarfirði

Maður slasaðist talsvert þegar hann féll af húsþaki við vinnu sína í Grundarfirði um klukkan 19 í gærkvöldi. Fallið var um þrír metrar. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl áleiðis til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar sem lenti við Vegamót og flutti hinn slasaða á Landspítalann í Fossvoginum. Þyrlan lenti í Reykjavík um níuleytið í gærkvöldi.Lesa meira

true

Umferðin eykst en ekki jafn hratt og áður

Samkvæmt nýjum tölum frá Vegagerðinni hefur umferð á Hringvegi aukist um 1,8% sem er minni aukning en mánuðina þar á undan. Engu að síður hefur ekki áður mælst meiri umferð á Hringveginum í aprílmánuði. Umferðin jókst einungis á tveimur svæðum eða Suðurlandi og í grennd við höfuðborgarsvæðið, en drógst talsvert saman á öðrum svæðum. Þessi…Lesa meira

true

Skagakonur með góðan sigur á Grindavík

ÍA og Grindavík áttust við í fyrstu umferð Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn í Akraneshöllinni. Skagakonur komu ákveðnar til leiks, sóttu hart að Grindavík en gestirnir voru alltaf hættulegar í sínum skyndisóknum. Liðin náðu þó ekki að skapa sér nein alvöru færi í fyrri hálfleik fyrir utan skalla Juliönu Marie Paoletti…Lesa meira