
Séra Guðrún Karls kjörin biskup Íslands
Í hádeginu í dag lauk talningu í kosningum um embætti biskups Íslands, en tveir voru í kjöri í þessari síðari umferð kosningar í embættið; þau Guðmundur Karl Brynjarsson og Guðrún Karls Helgudóttir. Úrslit urðu þau að sr. Guðrún hlaut fleiri atkvæði, eða 1.060 sem er 52,19%. Guðmundur Karl hlaut 954 atkvæði eða 46,97%. Á kjörskrá voru 2286; 166 prestar og djáknar og 2.119 leikmenn. Kjörsókn var 88,85%