
Fimmtudaginn 11. apríl var héraðsþing Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu haldið á Lýsuhóli. Töluvert margar tillögur voru lagðar fyrir þingið og ný lög HSH voru samþykkt samhljóða með breytingartillögu, en fyrst og fremst var verið að uppfæra lögin miðað við tíð og tíma en fyrri lög voru síðan 2008. Þá voru tillögur um arðgreiðslu og lottóuppgjör…Lesa meira








