Fréttir

true

Ólsarar áfram í Mjólkurbikarnum

Þriðju deildar lið Elliða og Víkingur Ólafsvík sem leikur í 2. deild á Íslandsmótinu í sumar mættust í 1. umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á Wurth vellinum í Árbæ. Luke Williams kom gestunum yfir með marki úr vítaspyrnu á 25. mínútu og ellefu mínútum síðar skoraði Björn Axel Guðjónsson annað…Lesa meira

true

Stuð í Brekkó í morgunsárið

Það vantaði ekki stuðið í Brekkubæjarskóla á Akranesi í morgun hvar blaðamann bar að garði þegar hann var að fylgja börnum sínum í skólann. Við anddyrið tók á móti manni hávær tónlist sem í þessu tilfelli var lagið Cotton Eye Joe með Rednex. Þar voru nokkrar ungar stúlkur að dansa línudans í takt við tónlistina…Lesa meira

true

Skipulagsbreytingar hjá Arion banka

Í febrúar urðu skipulagsbreytingar hjá Arion banka sem varða smærri og meðalstór fyrirtæki á landsbyggðinni. Helsta breytingin felur í sér að nú sinnir fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið Arion öllum fyrirtækjum, óháð stærð og staðsetningu. Þannig flytjast viðskiptastjórar fyrirtækja og fyrirtækjaráðgjafar sem starfa í starfsstöðvum bankans á Selfossi, Borgarnesi, Akureyri og Egilsstöðum af viðskiptabankasviði bankans yfir á…Lesa meira

true

Stóri plokkdagurinn verður sunnudaginn 28. apríl

Rótarýhreyfingin tók þátt í að skipuleggja plokk viðburði hjá nokkrum Rótarýklúbbum á landinu í fyrra sem þóttist takast mjög vel og var í kjölfarið ákveðið að gera daginn að lykil umhverfisverkefni starfsárs hreyfingarinnar til ársins 2026. Í mars sl. var undirritaður samstarfssamningur til þriggja ára um verkefnið við Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið og Landsvirkjun. Stóri…Lesa meira

true

Skíðasvæði Snæfellsness blæs í herlúðra

Það hefur verið mikið í gangi á Skíðasvæði Snæfellsness um páskana. Það var mikið hægt að skíða og hafa opnunardagar ekki verið svona margir í háa herrans tíð. Nú hafa forsvarsmenn skíðadeildarinnar hrundið af stað söfnun fyrir nýju aðstöðuhúsi. Gamli kofinn er kominn til ára sinna og er allt of lítill til að hægt sé…Lesa meira

true

Lokakeppni Vesturlandsdeildar 2024

Í gærkvöldi fór fram síðasta mótið í  Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum en keppt var í tveimur greinum, tölti T1 og skeiði í gegnum höllina. Því voru mörg stig í pottinum og allt gat gerst.  Í tölti T1 fóru leikar þannig: 1. Svandís Aitken Sævarsdóttir á Fjöður frá Hrísakoti 7.28 sek. Villiköttur fyrir Laxárholt 2. Siguroddur Pétursson…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrir Fjölni í körfunni

Fjölnir og Snæfell mættust í sjöttu og síðustu umferð B deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Dalhúsum í Grafarvogi. Ljóst var fyrir leik að úrslit leiksins skiptu litlu máli og því gátu liðin komið afslöppuð til leiks. Leikurinn fór enda hægt af stað, eftir um rúman fimm mínútna leik var staðan…Lesa meira

true

Háskólinn á Bifröst – uppskeruhátíð nýsköpunar

Nemendur í Nýsköpun og viðskiptaáætlanagerð við Háskólann á Bifröst kynna lokaverkefni sín í Hjálmakletti, húsi Menntaskóla Borgarfjarðar, laugardaginn 6. apríl nk. klukkan 14 til 17. Sagt er frá þessu á heimasíðu skólans og eru aðdáendur Shark Tank þáttanna sérstaklega hvattir til að koma við í Hjálmakletti við þetta tækifæri, en kynningarnar fara fram með svipuðu…Lesa meira

true

Frítekjumark námsmanna hækkar og ábyrgðarmannakerfið kvatt

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur sett nýjar úthlutunarreglur fyrir Menntasjóð námsmanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Reglurnar kveða meðal annars á um að frítekjumark námsmanna verði 2,2 milljónir króna á ári. Frítekjumarkið hafði áður verið 1.622.000 kr. og nemur hækkunin því 35 prósentum. Þá hækkar framfærsla námsmanna um 8,7% á…Lesa meira

true

Undirskrifaður samningur Borgarbyggðar og Sjamma ehf

Í gær var undirritaður samningur á milli Borgarbyggðar og byggingaverktakans Sjamma ehf um niðurrif og nýbyggingu við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal. Nú þegar eru 15 gámar sem nýttir verða undir kennslu og salernisaðstöðu komnir á byggingarsvæðið. Vinna hefst strax á morgun, fimmtudag, við það að girða af fyrirhugað framkvæmdasvæði og undirbúa jarðvegsvinnu. Í…Lesa meira