
Ingvar Breiðfjörð Skúlason, svæðisstjóri einstaklinga á Vesturlandi og Sindri Sigurgeirsson svæðisstjóri fyrirtækja á Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum. Ljósm. aðsend
Skipulagsbreytingar hjá Arion banka
Í febrúar urðu skipulagsbreytingar hjá Arion banka sem varða smærri og meðalstór fyrirtæki á landsbyggðinni. Helsta breytingin felur í sér að nú sinnir fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið Arion öllum fyrirtækjum, óháð stærð og staðsetningu. Þannig flytjast viðskiptastjórar fyrirtækja og fyrirtækjaráðgjafar sem starfa í starfsstöðvum bankans á Selfossi, Borgarnesi, Akureyri og Egilsstöðum af viðskiptabankasviði bankans yfir á fyrirtækja- og fjárfestingabankasvið en verða áfram staðsettir í þessum kjarnaútibúum Arion á landbyggðinni.