Baldur Þorleifsson, Mammusu Secka og Adda Ásmundsdóttir í leiknum. Ljósm. karfan.is

Snæfell tapaði fyrir Fjölni í körfunni

Fjölnir og Snæfell mættust í sjöttu og síðustu umferð B deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Dalhúsum í Grafarvogi. Ljóst var fyrir leik að úrslit leiksins skiptu litlu máli og því gátu liðin komið afslöppuð til leiks. Leikurinn fór enda hægt af stað, eftir um rúman fimm mínútna leik var staðan 7:4 fyrir Fjölni en þegar fyrsta leikhluta lauk voru heimakonur komnar með átta stiga forskot, staðan 23:15. Gestirnir reyndu hvað þær gátu í öðrum leikhluta að koma sér inn í leikinn en gekk erfiðlega að nálgast Fjölni að einhverju marki. Þegar flautað var til hálfleiks var munurinn á liðunum þó aðeins sex stig, 47:41, og ágætis von fyrir Snæfell að fá eitthvað út úr leiknum.

Snæfell tapaði fyrir Fjölni í körfunni - Skessuhorn