Beðið við lyftuna einn blíðviðrisdaginn í vetur. Ljósm. tfk

Skíðasvæði Snæfellsness blæs í herlúðra

Það hefur verið mikið í gangi á Skíðasvæði Snæfellsness um páskana. Það var mikið hægt að skíða og hafa opnunardagar ekki verið svona margir í háa herrans tíð. Nú hafa forsvarsmenn skíðadeildarinnar hrundið af stað söfnun fyrir nýju aðstöðuhúsi. Gamli kofinn er kominn til ára sinna og er allt of lítill til að hægt sé að geyma þar búnað og áhöld, hvað þá heilan snjótroðara. Ákveðið hefur verið að hefja söfnun fyrir 160 fermetra stálgrindarhúsi sem verður geymsla fyrir snjótroðarann og aðstöðuhús fyrir skíðabrekkuna í senn. „Húsið verður búið góðri aðstöðu fyrir iðkendur og starfsfólk; með rúmgóðum salernum, matsal og fleiru. Það er til fullt af sniðugu dóti sem hægt er að kaupa til að gera brekkurnar skemmtilegri og kenna byrjendum, en ekki hefur verið til aðstaða til að geyma slíkt dót," segir á heimasíðu félagsins.  

Skíðasvæði Snæfellsness blæs í herlúðra - Skessuhorn