Ný reglugerð getur skipt nemendur miklu peningalegu máli.

Frítekjumark námsmanna hækkar og ábyrgðarmannakerfið kvatt

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur sett nýjar úthlutunarreglur fyrir Menntasjóð námsmanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Reglurnar kveða meðal annars á um að frítekjumark námsmanna verði 2,2 milljónir króna á ári. Frítekjumarkið hafði áður verið 1.622.000 kr. og nemur hækkunin því 35 prósentum. Þá hækkar framfærsla námsmanna um 8,7% á milli skólaára til að mæta verðlagshækkunum. Hækkun frítekjumarksins hefur veruleg áhrif á kjör námsmanna. Námsmaður sem var með 2,2 m.kr. í launatekjur eða meira í fyrra mun auka ráðstöfunartekjur sínar um 260 þúsund krónur. Mánaðarlega gera það um 29 þúsund krónur á níu mánaða skólaári.

Frítekjumark námsmanna hækkar og ábyrgðarmannakerfið kvatt - Skessuhorn