
Stuð í Brekkó í morgunsárið
Það vantaði ekki stuðið í Brekkubæjarskóla á Akranesi í morgun hvar blaðamann bar að garði þegar hann var að fylgja börnum sínum í skólann. Við anddyrið tók á móti manni hávær tónlist sem í þessu tilfelli var lagið Cotton Eye Joe með Rednex. Þar voru nokkrar ungar stúlkur að dansa línudans í takt við tónlistina og varla hægt að byrja daginn betur. Blaðamanni langaði að slást í för í dansinum en var beðinn góðfúslega af syni sínum að gera það ekki og snúa heim á leið. En þó var tekin mynd áður af þessum efnilegu dönsurum sem létu ekki sitt eftir liggja í línudansinum.
Skólaliðinn Alda Berglind Sverrisdóttir tekur alla skóladaga á móti börnunum í 3., 4. og 7. bekk við anddyrið gegnt Kirkjuhvoli og ósjaldan tekur tónlistin á móti börnunum þegar þau koma í skólann. Þó þau segi ekki alltaf góðan dag við Öldu og séu stundum ekki í sínu besta skapi þá tekur hún alltaf jafnvel á móti þeim. Það er alls ekki slæmt að hafa svona starfsmann í sínum röðum og því fær Alda hrós dagsins sem hún á fyllilega skilið. Takk Alda!