Fréttir

true

Notendavænni og sjálfvirkari þjónusta við íbúa

Borgarbyggð hefur á síðustu vikum unnið að því að bæta þjónustu og auka skilvirkni í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Farið var í víðamikla skipuritsbreytingu á síðasta ári og í kjölfarið hefur farið fram umbótavinna með það að markmiði að bæta gæðaferla, auka teymisvinnu og faglega þekkingu á ákveðnum málaflokkum í stjórnsýslunni. Einnig hefur verið ákveðið að veita…Lesa meira

true

Stefna á að nýtt ráðhús verði byggt við Mánabraut

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 21. mars síðastliðinn var fyrsti dagskrárliður bókaður svo: „Mánabraut 20 – viljayfirlýsing, kaupsamningur og afsal. Drög að viljayfirlýsingu lögð fram.“ Nánar er ekki sagt frá innihaldi viljayfirlýsingarinnar. Þeir sem til þekkja vita að Mánabraut 20 er fyrrum skrifstofuhús Sementsverksmiðjunnar. Húsinu hefur lítt verið haldið við eftir að framleiðslu sements var hætt…Lesa meira

true

Einungis yngsta stigi grunnskóla verður kennt á Varmalandi

Meirihluti byggðarráðs Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 21. mars síðastliðinn að kennslu barna í 5.-10. bekk Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi verði hætt frá og með næsta hausti. Minnihluti í sveitarstjórn leggst gegn því að miðstig skólans verði lagt niður og kennslu barna sinnt í Borgarnesi og á Kleppjárnsreykjum. Bæði meiri- og minnihluti byggðarráð lögðu fram…Lesa meira

true

Baráttan eykst um bílastæðin í höfuðborginni

FÍB gagnrýnir græðgisvæðinguna samhliða þéttingu byggðar í Reykjavík „Reykjavíkurborg og einkafyrirtæki hafa að undanförnu stóraukið gjaldtöku fyrir bílastæði, stækkað gjaldtökusvæði, lengt gjaldtökutíma og sett upp ný. Gjaldtaka á sumum nýlegum bílastæðum í einkaeigu lyktar af græðgi. Nefna má bílastæðið á Barónsstíg 4 í Reykjavík, þar sem klukkutíminn kostar 1.000 kr og innheimt er allan sólarhringinn.“…Lesa meira

true

Fyrsta landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks samþykkt á Alþingi

Alþingi samþykkti í síðustu viku fyrstu landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks hér á landi. Áætlunin felur í sér 60 aðgerðir til að koma í framkvæmd ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Landsáætlunin er liður í innleiðingu og lögfestingu samningsins hér á landi. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands. „Ísland er nú í…Lesa meira

true

Bjarki tekur þátt í Next Golf Tour mótaröð

Next Golf Tour er ný mótaröð sem býður upp á fjölbreyttari keppnismöguleika fyrir kylfinga um allan heim. Það er eingöngu hægt að spila mótin í Trackman – innigolfhermi, enda er mótaröðin búin til af því fyrirtæki. Atvinnukylfingurinn Bjarki Pétursson tekur þátt í þessari mótaröð og náði blaðamaður stuttu spjalli við Bjarka um mótaröðina. „Þetta fer…Lesa meira

true

Unnið að stofnun viðbragðssveitar þegar válegir atburðir verða

Heilbrigðisráðherra hefur stofnað undirbúningshóp sem ætlað er að koma á fót EMT (Emergency Medical Team) viðbragðssveit hér á landi. Ákvörðun um stofnun hópsins er tekin að undangengnu samráði í ríkisstjórn. EMT viðbragðssveitir eru virkjaðar ef válegir atburðir eiga sér stað sem valda almannavarnaástandi, svo sem vegna stórra hópslysa, farsótta, hópsýkinga eða náttúruhamfara. Þær eru mannaðar…Lesa meira

true

Æfir Bugsy Malone í Þjóðleikhúsinu og er á næturvöktum í Olís

Borgnesingurinn Bjarni Freyr Gunnarsson er þessa dagana að æfa fyrir söngleikinn Bugsy Malone, en verkið verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn 4. apríl. Blaðamaður Skessuhorns hitti Bjarna á Kaffi Kyrrð í Borgarnesi og spjallaði stuttlega við hann. „Við erum búin að vera að æfa mikið síðustu vikur og nú tekur við mikil æfingatörn, þar sem æfingar…Lesa meira

true

Íslenska gámafélagið lægst í útboði sorpþjónustu í Grundarfirði

Á fundi bæjarráðs Grundarfjarðarbæjar föstudaginn 22. mars voru sorpmál á dagskrá fundarins. Eftir yfirferð og úrvinnslu tilboða í útboði sorpþjónustu hjá Grundarfjarðarbæ og Snæfellsbæ í desember/janúar sl. var öllum tilboðum hafnað, sbr. fund bæjarstjórnar 16. febrúar sl. Nýtt hraðútboð var sett af stað, þar sem sama útboð var endurtekið með örlítið breyttum forsendum og styttri…Lesa meira

true

Helga Þórisdóttir býður sig fram til forseta

Helga Þórisdóttir, sem gegnt hefur starfi forstjóra Persónuverndar undanfarin rúm átta ár, tilkynnti á blaðamannafundi fyrr í dag að hún ætlar að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. „Mín áhersluatriði sem forseti eru fyrst og fremst að vera þjónn fólksins í landinu – og vera fremst í flokki við að styðja við alla landsmenn.…Lesa meira