Bjarni Freyr Gunnarsson. Ljósm. hig

Æfir Bugsy Malone í Þjóðleikhúsinu og er á næturvöktum í Olís

Borgnesingurinn Bjarni Freyr Gunnarsson er þessa dagana að æfa fyrir söngleikinn Bugsy Malone, en verkið verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn 4. apríl. Blaðamaður Skessuhorns hitti Bjarna á Kaffi Kyrrð í Borgarnesi og spjallaði stuttlega við hann. „Við erum búin að vera að æfa mikið síðustu vikur og nú tekur við mikil æfingatörn, þar sem æfingar munu hefjast klukkan tíu á morgnana og ljúka klukkan 22 á kvöldin með rennsli, en svo er ég á næturvöktum á Olís í Borgarnesi en það hefur sloppið hingað til, með vaktir og annað. Ég býst við að verða frekar þreyttur í vinnunni næstu viku en það fylgir þessu,“ segir Bjarni.