Petra Dís Magnúsdóttir var nýverið ráðin í starf verkefnastjóri stafrænnar lausna og upplýsingamiðlunar, en hún er hér ásamt Lilju Björg Ágústsdóttur, sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs. Ljósm. hig

Notendavænni og sjálfvirkari þjónusta við íbúa

Borgarbyggð hefur á síðustu vikum unnið að því að bæta þjónustu og auka skilvirkni í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Farið var í víðamikla skipuritsbreytingu á síðasta ári og í kjölfarið hefur farið fram umbótavinna með það að markmiði að bæta gæðaferla, auka teymisvinnu og faglega þekkingu á ákveðnum málaflokkum í stjórnsýslunni. Einnig hefur verið ákveðið að veita stafrænum verkefnum mun meira vægi í stjórnsýslunni í því skyni að auka sjálfvirkni og stafræna málsmeðferð til að mæta breyttum kröfum og þörfum.