Til stendur að rífa fyrrum skrifstofur Sementsverksmiðjunnar og byggja þar ráðhús en jafnframt er möguleiki á annarri starfsemi, að sögn bæjarstjóra. Ljósm. mm

Stefna á að nýtt ráðhús verði byggt við Mánabraut

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 21. mars síðastliðinn var fyrsti dagskrárliður bókaður svo: „Mánabraut 20 - viljayfirlýsing, kaupsamningur og afsal. Drög að viljayfirlýsingu lögð fram.“ Nánar er ekki sagt frá innihaldi viljayfirlýsingarinnar. Þeir sem til þekkja vita að Mánabraut 20 er fyrrum skrifstofuhús Sementsverksmiðjunnar. Húsinu hefur lítt verið haldið við eftir að framleiðslu sements var hætt á Akranesi 2012 og stendur til að rífa það. Lóðin líkt og allur Sementsreiturinn hefur verið í eigu Akraneskaupstaðar eftir að ákvörðun var tekin um að einkavæða Sementsverksmiðjuna árið 2003, en byggingin sjálf er í eigu ríkisins að meirihluta á móti bænum.

Stefna á að nýtt ráðhús verði byggt við Mánabraut - Skessuhorn