Fréttir

true

Ungliðasveitin Glanni og fjallamennskuáfangi í MB

Mikil gróska er um þessar mundir hjá ungliðasveitinni Glanna í Borgarnesi en Glanni er ungliðasveit þriggja björgunarsveita; Brákar, Oks og Heiðars.  Alls eru 25 ungliðar skráðir í sveitina, sem heldur fundi tvisvar í mánuði sem hafa allir verið vel sóttir. Viðfangsefni fundanna eru margvís, meðal annars hefur verið farið yfir fyrstu hjálp, línuvinnu, leitaræfingar, klifur…Lesa meira

true

Food & Fun hátíðin var haldin um síðustu helgi – Grjótkrabbinn í lykilhlutverki

Opnunarhóf fyrir matarhátíðina Food & Fun var haldið um miðja síðustu viku í Hótel- og matvælaskólanum sem er staðsettur í Menntaskólanum í Kópavogi. Skólinn er hluti af MK þar sem iðnnám í matvælagreinum er kennt og við hann er nú kennd bakaraiðn, framreiðsla, kjötiðn og matreiðsla. Allir verknámsnemendur í skólanum og kennarar komu að undirbúningi…Lesa meira

true

Fengu fræðslu um bláfánann og hreinsuðu svo ströndina

Vaskur hópur nemenda í 2. bekk Grundaskóla á Akranesi fór í vikunni í góðan göngutúr. Farið var niður á Langasand þar sem Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar tók á móti hópnum. Fræddi hann þau um umhverfismál og hvatti til umhverfisvitundar. Sagði hann börnunum m.a. frá bláfánaverkefninu sem nú hefur verið í rúman áratug á Langasandi…Lesa meira

true

Fimmti flokkur ÍA með fótboltamaraþon í Akraneshöllinni

Næsta laugardag ætla stelpurnar úr 5. flokki ÍA að vera með fótboltamaraþon í Akraneshöllinni. Þær ætla að spila stanslaust í sex klukkustundir, hefja leik klukkan 18 og spila síðan til miðnættis. Stelpurnar hafa verið að ganga í hús á Akranesi undanfarið til að safna áheitum en þær eru að safna fyrir keppnisferð á Pæjumótið í…Lesa meira

true

Samkaup birtir afkomutölur fyrir síðasta ár

Verslanakeðjan Samkaup hf. hefur birt ársreikning fyrir rekstrarárið 2023 og samþykkt á aðalfundi félagsins. „Niðurstöður endurspegla þá miklu vinnu sem stjórnendur hafa lagt í innri vinnu og aukin skilvirkni í rekstri,“ segir í tilkynningu. Samkaup hagnaðist um 268 milljónir samanborið við 192 milljóna tap árið áður. Vörusala jókst á milli ára og nam rúmum 42,3…Lesa meira

true

Erlent fólk nálgast það að vera fimmtungur þjóðarinnar

Alls voru 76.001 erlendur ríkisborgari skráður með búsetu hér á landi 1. mars síðastliðinn, en það jafngildir 19% landsmanna. Íslendingar eru því 81% þeirra sem hér búa. Hefur erlendum borgurum fjölgað um 1.578 einstaklinga frá 1. desember 2023, eða um 2,1%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 317 einstaklinga eða um 0,1%. Ríkisborgurum frá…Lesa meira

true

Malíbó opnar á Aggapalli í sumar

Það er ljóst að það bætist í veitingaflóruna á Akranesi í sumar en bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 29. febrúar síðastliðinn að leigja út húsið á Aggapalli til Rakelar Mirru Njálsdóttur. Rakel ætlar að opna þar nýjan stað, sem ber heitið Malíbó, og selja léttar veitingar. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Akraneskaupstaðar.…Lesa meira

true

Engar umsóknir bárust um rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í gær kom fram að engar umsóknir bárust um rekstraraðila sundlaugarinnar að Hlöðum í sumar. Fjölskyldu- og frístundanefnd hafði lagt til við sveitarstjórn að greina kosti þess og galla að sveitarfélagið myndi sjá um rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum. Á fundinum lagði Andrea Ýr Arnardóttir oddviti fram eftirfarandi tillögu: „Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir…Lesa meira

true

Anna Lea og Halldór Emil unnu upplestrarkeppnina

Lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi fyrir árið 2024 var haldin í Tónbergi í gærkvöldi fyrir nánast fullu húsi. Tólf nemendur í 7. bekk sem valdir höfðu verið eftir undankeppni úr Brekkubæjarskóla og Grundaskóla tóku þátt og voru sex nemendur frá hvorum skóla. Frá Brekkubæjarskóla lásu Anna Lea Halldórsdóttir, Bryndís Lilja Gautadóttir, Davíð Antti Liljar Geirsson,…Lesa meira

true

Allir fulltíða Lunddælingar hafa skrifað undir vegaáskorun

Undanfarið hafa íbúar í Lundarreykjadal í Borgarfirði safnað undirskriftum til að knýja á um að malarvegir í dalnum verði lagfærðir. Nú er svo komið að allir fulltíða Lunddælir, sem í hefur náðst, hafa skrifað undir og verða undirskriftirnar afhentar Pálma Sævarssyni umdæmisstjóra Vegagerðarinnar í dag. „Eins og gefur að skilja er afleitt ástand malarveganna ástæða…Lesa meira