Opnunarhóf fyrir matarhátíðina Food & Fun var haldið síðasta miðvikudag í Hótel- og matvælaskólanum í MK. Blaðamaður Skessuhorns var viðstaddur. Mikla athygli vakti grjótkrabbasúpa með krabbakjöti sem er með tengingu við nýsköpun á Akranesi. Hér er súpunni hellt í glös. Fyrirtækið North Seafood Solutions á Breið hefur verið í verkefni tengdu grjótkrabbaveiðum undanfarin ár og fengið styrk frá Matvælasjóði til að þróa afurðir úr grjótkrabba. Fyrirtækið er í samstarfi með Böðvari Ingvarssyni og bræðrunum Guðmundi Páli og Haraldi Jónssonum sem gera út bátana Emilíu AK 57 og Inga Rúnar AK 35. Ljósm. vaks

Food & Fun hátíðin var haldin um síðustu helgi – Grjótkrabbinn í lykilhlutverki

Opnunarhóf fyrir matarhátíðina Food & Fun var haldið um miðja síðustu viku í Hótel- og matvælaskólanum sem er staðsettur í Menntaskólanum í Kópavogi. Skólinn er hluti af MK þar sem iðnnám í matvælagreinum er kennt og við hann er nú kennd bakaraiðn, framreiðsla, kjötiðn og matreiðsla. Allir verknámsnemendur í skólanum og kennarar komu að undirbúningi hófsins og sáu um allar veitingar sem boðið var upp á. Skagamaðurinn Haraldur J. Sæmundsson, framkvæmdastjóri Hótel- og matvælaskólans, ávarpaði viðstadda og bauð þá velkomna. Hann kynnti síðan til leiks Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra sem hélt stutta ræðu. 

Food & Fun hátíðin var haldin um síðustu helgi - Grjótkrabbinn í lykilhlutverki - Skessuhorn