
Vaskur hópur ungs björgunarsveitarfólks. Ljósm. Páll Einarsson
Ungliðasveitin Glanni og fjallamennskuáfangi í MB
Mikil gróska er um þessar mundir hjá ungliðasveitinni Glanna í Borgarnesi en Glanni er ungliðasveit þriggja björgunarsveita; Brákar, Oks og Heiðars. Alls eru 25 ungliðar skráðir í sveitina, sem heldur fundi tvisvar í mánuði sem hafa allir verið vel sóttir. Viðfangsefni fundanna eru margvís, meðal annars hefur verið farið yfir fyrstu hjálp, línuvinnu, leitaræfingar, klifur og tryggingar ásamt fræðslu um ýmiskonar tækjabúnað, bíla og snjósleða. Ungliðasveitin hefur verið virk í fjáröflunum og fengið styrki sem nýttir hafa verið í kaup á útivistarbúnaði og á peysum sem að krakkarnir merktu sjálfir í sköpunarrýminu Kviku í Menntaskóla Borgarfjarðar.