
Fengu fræðslu um bláfánann og hreinsuðu svo ströndina
Vaskur hópur nemenda í 2. bekk Grundaskóla á Akranesi fór í vikunni í góðan göngutúr. Farið var niður á Langasand þar sem Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar tók á móti hópnum. Fræddi hann þau um umhverfismál og hvatti til umhverfisvitundar. Sagði hann börnunum m.a. frá bláfánaverkefninu sem nú hefur verið í rúman áratug á Langasandi og tengdi við grænfánaverkefnið sem mörg börn þekkja úr leikskólunum. Eftir þetta tóku börnin svo að sér að hreinsa umhverfi Langasands; ströndina, grjóthleðslur og meðfram göngustígnum. Út úr þessu fengu börnin góða fræðslu og holla útiveru. „Það var gaman að taka á móti þessum hressu börnum. Þau fengu góða útiveru út úr þessu og voru ekki að telja það eftir sér að taka til hendinni,“ sagði Jón í samtali við Skessuhorn. Meðfylgjandi myndir sendi Hafrún Jóhannesdóttir kennari til Skessuhorns.