Samkaup birtir afkomutölur fyrir síðasta ár

Verslanakeðjan Samkaup hf. hefur birt ársreikning fyrir rekstrarárið 2023 og samþykkt á aðalfundi félagsins. „Niðurstöður endurspegla þá miklu vinnu sem stjórnendur hafa lagt í innri vinnu og aukin skilvirkni í rekstri,“ segir í tilkynningu. Samkaup hagnaðist um 268 milljónir samanborið við 192 milljóna tap árið áður. Vörusala jókst á milli ára og nam rúmum 42,3 milljörðum, samanborið við rúma 40 milljarða árið áður. Þá var eigið fé í árslok 3.139 milljón króna, samanborið við 3.021 milljónir árið 2022 og eiginfjárhlutfall 17,2%.

Samkaup birtir afkomutölur fyrir síðasta ár - Skessuhorn