Fréttir

true

Mikil sala eldisfisks í byrjun árs

Framleiðsla og útflutningur á eldisafurðum hefur farið afar vel af stað í byrjun árs. Í Radarnum, vefriti SFS, kemur fram að á fyrstu tveimur mánuðum ársins er útflutningsverðmæti eldisafurða komið í 13,3 milljarða og er það langhæsta upphæð á þessu tímabili frá upphafi. Útflutningsverðmæti eldisafurða í janúar og febrúar er þannig 35% hærri en frá…Lesa meira

true

Snæfell vann mikilvægan sigur gegn Hrunamönnum

Snæfell tók á móti Hrunamönnum í Stykkishólmi á föstudaginn í fyrstu deildinni í körfu. Fyrir leikinn voru Hrunamenn með 6 stig í 11. sæti deildarinnar en Snæfell með 4 stig í 12. sæti. Hrunamenn unnu fyrri leik liðana með sex stigum og þurfti Snæfell því að vinna með sjö stigum eða meiru til að vinna…Lesa meira

true

Línubátur þurfti að millilanda því slík voru aflabrögðin

„Þetta eru bara algjört rugl aflabrögð,“ sögðu skipverjar á Gísla Súrssyni GK og Indriða Kristins BA þegar þeir voru að landa í Ólafsvík í gær. Emanúel Magnússon skipstjóri á Gísla Súrssyni GK, sem Einhamar frá Grindavík gerir út, sagði að þeir hefðu aðeins dregið helminginn af þeim 19 þúsund krókum sem þeir að jafnaði leggja…Lesa meira

true

Skelltu sér í skíðaferð í Hlíðarfjall

Nemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði, sem eru í íþróttaáfanganum ÍÞRÓ1SK02, skelltu sér í Hlíðarfjall á Akureyri dagana 4. til 6. mars sl. Alls voru þetta 36 nemendur og ásamt þeim voru þau Guðrún Jóna Jósepsdóttir og Gísli Pálsson sem sáu um fararstjórn og grunnkennslu fyrir þá sem voru að stíga sín fyrstu skref á…Lesa meira

true

Framundan eru gjörningar til minningar um Hrein Friðfinnsson

Gjörningatríó – gönguleið meðfram mæðiveikigirðingu, málþing og sveitaball Látinn er listamaðurinn Hreinn Friðfinnsson, 81 árs að aldri. Hreinn var frá Bæ í Miðdölum í Dalasýslu, fæddur árið 1943. Ungur lærði hann myndlist og hefur í áratugi unnið að listsköpun sinni í Amsterdam í Hollandi, eða allt frá árinu 1971. Síðustu mánuði fyrir andlát sitt var…Lesa meira

true

Mokafli í öll veiðarfæri og sumir tvílanda

Mjög góður afli hefur verið í öll veiðarfæri í Snæfellsbæ að undanförnu og ekki óalgengt að bátar hafa tvílandað sama daginn. Línubáturinn Lilja SH landaði tvisvar fyrir helgi í Rifi, fyrst 14,5 tonnum og síðar um kvöldið tæpum 8 tonnum og lagði báturinn 12 af 15 rekkum sem þeir voru með um borð. Emil Freyr…Lesa meira

true

Mögulegar vendingar um framtíð óbyggðanefndar

Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokks, með Teit Björn Einarsson í broddi fylkingar, lögðu í síðustu viku fram breytingartillögu á þingi við frumvarp til laga um breytinga á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, sem forsætisráðherra er með fyrir þinginu. Þessi breytingartillaga myndi að óbreyttu þýða starfslok óbyggðanefndar fyrr en áætlað hefur verið. Lagt…Lesa meira

true

Þjóðvegurinn ónýtur á löngum köflum í Dölum og Reykhólasveit

Fræsa slitlagið saman við undirlagið og þannig verður vegurinn til næsta sumars Ástand Vestfjarðavegar (60) í Reykhólasveit og Dalabyggð er afar bágt. Á vef Vegagerðarinnar segir á föstudaginn að slitlag hafi farið mjög illa og hefur burðarlag gefið sig á löngum köflum. Það veldur því að stórir kögglar í slitlagi hafa losnað og við það…Lesa meira

true

Fyrsta hæðin farin að taka á sig mynd á Garðabraut 1

Eins og sést á meðfylgjandi myndum er nú byrjað að rísa upp úr jörðinni fjölbýlishúsið við Garðabraut 1 á Akranesi. Þetta verður stærsta fjölbýlishúsið á Akranesi, með um 50 íbúðum, en það er Bestla sem byggir. Stór bílakjallari er undir húsinu sem rúma á einn bíl fyrir hverja íbúð. Bílakjallarinn verður allur undir yfirborðinu og…Lesa meira

true

Ásþungi lækkaður yfir Bröttubrekku

Frá og með klukkan 8:00 í fyrramálið, laugardaginn 9. mars, verður ásþungi lækkaður úr 10 tonnum í 7 tonn á Vestfjarðavegi yfir Bröttubrekku, frá Hringveginum við Dalsmynni í Norðurárdal og að vegamótum á Snæfellsnesvegi 54.Lesa meira