Þegar þannig er ástatt er ekkert annað í stöðunni en fræsa veginn upp og bíða með lagningu slitlags þar til veðuraðstæður leyfa. Ljósmyndir: Vegagerðin

Þjóðvegurinn ónýtur á löngum köflum í Dölum og Reykhólasveit

Fræsa slitlagið saman við undirlagið og þannig verður vegurinn til næsta sumars

Ástand Vestfjarðavegar (60) í Reykhólasveit og Dalabyggð er afar bágt. Á vef Vegagerðarinnar segir á föstudaginn að slitlag hafi farið mjög illa og hefur burðarlag gefið sig á löngum köflum. Það veldur því að stórir kögglar í slitlagi hafa losnað og við það skapast mjög hættulegar aðstæður fyrir ökumenn. Langir kaflar á Vestfjarðavegi eru metnir það slæmir að ekki er hægt að halda þeim við. Því hefur verið ákveðið að fræsa slitlagið á þessum köflum saman við burðarlög vegarins, hefla út og þjappa. Veðuraðstæður koma í veg fyrir að hægt sé að leggja klæðingu á veginn nú og því verða þessir ákveðnu hlutar vegarins malarkaflar fram á næsta sumar. Reynt verður að klæða þá við fyrsta tækifæri þegar hlýnar í veðri. Viðkomandi vegarkaflar verða vel merktir en nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.umferdin.is.

„Vegagerðin hvetur ökumenn til að sýna sérstaka aðgát þegar ekið er um svæðið. Unnið verður að lagfæringum nú um helgina en ljóst er að þungatakmarkanir verða áfram í gildi á Vesturlandi og Vestfjörðum fram í næstu viku.“

Ástandið er einkar slæmt á löngum köflum á þjóðvegi 60 frá Bröttubrekku yfir í Gufudalssveit og á vegi 607 í Reykhólasveit. Sérstaklega ber að nefna kaflann frá Fellsenda að Erpsstöðum þar sem slitlagið er mjög víða að brotna upp. Umferðarhraði hefur verið tekinn niður í 50 km/klst. frá Gröf að Erpsstöðum annars vegar og frá Króksfjarðarnesi að Bjarkarlundi hins vegar.