Svipmynd frá Breiðafirði, en fyrir liggur krafa ríkisins um að eignast 3074 eyjar og sker á firðinum, allar nema 26 þeirra.

Mögulegar vendingar um framtíð óbyggðanefndar

Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokks, með Teit Björn Einarsson í broddi fylkingar, lögðu í síðustu viku fram breytingartillögu á þingi við frumvarp til laga um breytinga á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, sem forsætisráðherra er með fyrir þinginu. Þessi breytingartillaga myndi að óbreyttu þýða starfslok óbyggðanefndar fyrr en áætlað hefur verið. Lagt er til að ákvæði 1. mgr. laganna komi málsgrein þar sem segir að valdsvið óbyggðanefndar taki ekki til landsvæða utan strandlengju meginlandsins. Í greinargerð með tillögunni er ítrekað að fellt er brott ákvæði um málsmeðferð mála sem taka til landsvæða sem eru utan strandlengjunnar, þ.e. eyjar, sker, dranga og hólma. Hefur breytingin, ef hún verður samþykkt, í för með sér að öll yfirstandandi mál sem taka til landsvæða utan meginlandsins falla niður.

Mögulegar vendingar um framtíð óbyggðanefndar - Skessuhorn