
Horft til austurs yfir byggingasvæðið. Ljósm. mm
Fyrsta hæðin farin að taka á sig mynd á Garðabraut 1
Eins og sést á meðfylgjandi myndum er nú byrjað að rísa upp úr jörðinni fjölbýlishúsið við Garðabraut 1 á Akranesi. Þetta verður stærsta fjölbýlishúsið á Akranesi, með um 50 íbúðum, en það er Bestla sem byggir. Stór bílakjallari er undir húsinu sem rúma á einn bíl fyrir hverja íbúð. Bílakjallarinn verður allur undir yfirborðinu og að hluta til grasi lagður eftir að byggingin verður risin. Efri hæðir hússins ganga því ekki eins langt út að nærliggjandi götum. Áætluð verklok við húsið eru haustið 2025 sem þýðir að byggingartíminn verður um tvö ár. Húsið er reist úr forsteyptum einingum frá Smellinn.